Þorláksmessu Skötuveisla 2023

Return to all

Þorláksmessa 23. desember, kl. 12:00 og 18:00

Eins og hefð er fyrir verður skötuveisla á Rauða Húsinu þann 23. desember. Í boði verður skata, saltfiskur, plokkfiskur, meðlæti og grjónagrautur.

VERÐ ER 3.790 KR.

Hálft gjald fyrir börn 6-12 ára, ókeypis fyrir yngstu börn.

Bóka borð

Borðapantanir í síma: 483-3330 eða bóka borð á netinu.

HVERS VEGNA ER SKATA BORÐUÐ Á ÞORLÁKSMESSU?

Í kaþólskum sið var fasta fyrir jólin og átti þá ekki að borða mikið góðgæti og einna síst á Þorláksmessu. Það átti að vera sem mestur munur á föstumat og jólakræsingum, auk þess sem ekki þótti við hæfi að borða kjöt á dánardegi heilags Þorláks.

Aðalreglan var samt sú að borða lélegt fiskmeti á þessum degi, en misjafnt var hvað hentaði best á hverjum stað. Á Suðurlandi var sumstaðar soðinn horaðasti harðfiskurinn og frá Vopnafirði er þessi vísa til marks um mataræðið.

Tekið af vísindavefnum

Að okkar mati er skata eðalmatur og hlökkum við mikið til skötuveislunnar á Þorláksmessu.

Bjórflóðið 30. desember

Ekki láta þig vanta! Stærsta ball ársins verður haldið á föstudaginn 30. desember! Húsið opnar kl. 22:00, Bjórbandið spilar frá kl. 23:00.

Opnunartímar um jól og áramót:

  • 23. desember: borðapantanir í sal 17:00-20:00
    • hádegisskata 12:00-13:00, borðapantanír í kvöldskötu 18:30-19:30
  • 24-27. desember: lokað
  • 28-30. desember: borðapantanir 17:00-20:00
    • 30. desember: Bjórflóð tónleikar og ball
  • 31. desember-3. janúar: lokað

Bóka borð