Tónleikar á Skírdag í Eyrarbakkakirkju – opnum fyrr fyrir gesti

Return to all

Á Skírdag, fimmtudaginn 2. apríl kl. 16:00, verða tónleikar í Eyrarbakkakirkju með Lögin Hans Valgeirs. Tónleikarnir fara fram í fallegu og hátíðlegu umhverfi kirkjunnar og bjóða upp á notalega stund í páskavikunni.

Við opnum sérstaklega kl. 14:30 fyrir tónleikagesti, svo hægt sé að njóta súpu, kaffis eða létts réttar áður en tónleikarnir hefjast.

Á boðstólum fyrir tónleika:
• Humarsúpa og heimabakað brauð – 3.590 kr
• Grænmetissúpa dagsins með brauði – 1.990 kr
• Kaffi/te og tertusneið – 1.790 kr
• Grilluð samloka með skinku og osti, franskar – 1.490 kr

Eftir tónleikana verður veitingastaðurinn opinn eins og venjulega.

Við mælum með að bóka borð.

Bóka borð

Lögin hans Valgeirs í Eyrarbakkakirkju

Án efa munu mörg laganna tendra á stöðvum áheyrenda sem gamal kunnir smellir en einnig verða flutt lög sem falla undir nýsmíð hans.

Kristrún Steingrímsdóttir og Joel Christopher Durksen einstakir tónvinir Valgeirs, hafa unnið náið með honum síðastliðin tvö ár og hafa tengst lögum hans í hugum og hjörtum. Þau eru einstakir flytjendur sem hrífa mann og annan í flutningi sínum svo það er bara hægt að hlakka til.

Skoða nánar um tónleikar og kaupa miða