Þorláksmessa 23. desember, kl. 12:00 og 18:00
Eins og hefð er fyrir verður skötuveisla á Rauða Húsinu þann 23. desember. Í boði verður skata, saltfiskur, plokkfiskur, meðlæti og grjónagrautur.
VERÐ ER 4.990 KR í hádeginu, 5.990 kr um kvöldið
Hálft gjald fyrir börn 6-12 ára, ókeypis fyrir yngstu börn.
Borðapantanir í síma: 483-3330 eða á Dineout síðu.
HVERS VEGNA ER SKATA BORÐUÐ Á ÞORLÁKSMESSU?
Í kaþólskum sið var fasta fyrir jólin og átti þá ekki að borða mikið góðgæti og einna síst á Þorláksmessu. Það átti að vera sem mestur munur á föstumat og jólakræsingum, auk þess sem ekki þótti við hæfi að borða kjöt á dánardegi heilags Þorláks.
Aðalreglan var samt sú að borða lélegt fiskmeti á þessum degi, en misjafnt var hvað hentaði best á hverjum stað. Á Suðurlandi var sumstaðar soðinn horaðasti harðfiskurinn og frá Vopnafirði er þessi vísa til marks um mataræðið.
Tekið af vísindavefnum
Að okkar mati er skata eðalmatur og hlökkum við mikið til skötuveislunnar á Þorláksmessu.
Lokað verður um jól og áramót
- Frá 24. desember-14. febrúar verður lokað á veitingahúsinu.

